8.3.2007 | 14:52
Auðmýkt opnar leiðir
Hæ
það er mín reynsla að auðmýkt færir mann á áætlun Guð (já Guð hefur áætlun með þig), hér er framhald frá því í gær og von er á meira efni á næstunni þessu tengt. Föstudagar eru þó léttir að vanda.
Auðmýkt.
Mér var sagt að beygja mig fyrir Guði og fara á kné og biðja, mér fannst það nú hendur langt gengið en þá var mér sagt að sennilega kæmi kraftur Guðs í gegnum kné sem beygðu sig og bæðu um lausn hanz.
Ég finn fyrir því þegar ég næ að vera auðmjúkur að þá líður mér mun betur en ef ég er í hrokanu. Ég veit að Guð vill að ég auðmyki mig fyrir hann já honum til dýrðar.
Ef ég leitast við að lesa Guðs orð og´og einbeiti mer að því að vera heiðarlegur þá næ ég að hafa hugann við aðmýktina og næ að vera í henni. En um leið og ég fjarlægist þá koma gömlu taktarnir upp hrokinn og allt það leiðindar dæmi.
Svo segir hin helga Bók,
Sálm 69:33 Hinir auðmjúku sjá það og gleðjast, þér sem leitið Guðs _ hjörtu yðar lifni við.
Fil 2:9-11" 9"Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið, sem hverju nafni er æðra, 10 til þess að fyrir nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni, jörðu og undir jörðu 11 og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar: Jesús Kristur er Drottinn. Orð 18:12"Ofmetnaður hjartans er undanfari falls, en auðmýkt er undanfari virðingar."
Kol 3:12 "Íklæðist því eins og Guðs útvaldir, heilagir og elskaðir, hjartans meðaumkun, góðvild, auðmýkt, hógværð og langlyndi.
Matt 23:12 Hver sem upp hefur sjálfan sig, mun auðmýktur verða, en sá sem auðmýkir sjálfan sig, mun upp hafinn verða
Jes 38:15 Hvað á ég að segja? Hann talaði til mín og efndi sín orð. Í auðmýkt vil ég ganga alla mína lífdaga, því minni sálarangist er létt.
Ef 4:32 Verið góðviljaðir hver við annan, miskunnsamir, fúsir til að fyrirgefa hver öðrum, eins og Guð hefur í Kristi fyrirgefið yður.
Sál 86:5 Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum þeim er ákalla þig
Mannakorn fyrir daginn í dag er að finna hér
Beinum sjónum vorum til Jesú, höfundar og fullkomnara trúarinnar. Vegna gleði þeirrar, er beið hans, leið hann þolinmóðlega á krossi, mat smán einskis og hefur nú setst til hægri handar hásæti Guðs.Hebr 12:2
Guð blessi ykkur
Stebbinn
Meginflokkur: Trúmál og siðferði | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:49 | Facebook
Um bloggið
Stefán Garðarsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.